Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 07. febrúar 2023 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Los Angeles í viðræðum um Aubameyang
Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn þaulreyndi Pierre-Emerick Aubameyang er orðaður við bandaríska MLS félagið Los Angeles FC.


Hinn 33 ára gamli Aubameyang var keyptur til Chelsea síðasta haust en hefur ekki tekist að hrífa þjálfarateymið. 

Matteo Moretto, fyrrum fréttamaður Sky á Ítalíu, greinir frá því að Los Angeles ætli sér að klófesta Aubameyang sem á átján mánuði eftir af samningnum við Chelsea.

Það er aðeins liðið eitt ár síðan Aubameyang yfirgaf Arsenal á frjálsri sölu til að ganga í raðir Barcelona. Spænska stórveldið græddi svo pening á honum þegar hann var seldur til Chelsea síðasta sumar þar sem Thomas Tuchel vildi endilega endursameinast sínum gamla lærlingi frá tímunum hjá Borussia Dortmund.

Hjá Los Angeles myndi Aubameyang spila með Carlos Vela og Giorgio Chiellini, 


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner