07.03.14 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Andri Gíslason í Hauka (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Haukar hafa fengið framherjann Andra Gíslason í sínar raðir.
Andri er uppalinn FH-ingur en hann lék með Þrótti á láni sumarið 2012 sem og fyrri hluta síðasta tímabils.
Í júlí í fyrra skipti Andri yfir í Gróttu þar sem hann skoraði fimm mörk í tíu leikjum í 2. deildinni.
Þessi 22 ára gamli framherji hefur nú gengið til liðs við Hauka og mun leika með liðinu í 1. deildinni í sumar.
Andri gæti spilað sinn fyrsta leik með Haukum þegar liðið mætir Selfyssingum í Lengjubikarnum á morgun.