07.03.16 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Armin Veh rekinn frá Frankfurt (Staðfest)

Armin Veh fékk að fjúka.

Mynd: Getty Images

Armin Veh fékk að fjúka.

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarfélagið Frankfurt hefur rekið þjálfarann Armin Veh eftir 1-1 jafntefli gegn Ingolstadt á laugardag sem sendi liðið niður í fallsæti deildarinnar.
Veh sneri aftur til síns gamla félags í sumar eftir að hafa yfirgefið Frankfurt og tekið við Stuttgart en honum tókst ekki að ná jafn góðum árangri og í fyrri dvöl sinni. Þá kom hann liðinu upp í úrvalsdeildina og síðar í Evrópudeildina.

„Þetta var virkilega erfið ákvörðun því Armin Veh naut trausts okkar þar til nýlega," sagði Heribert Bruchhagen, stjórnarformaður Frankfurt, við heimasíðu félagsins.
„Við vildum ýta vel við liðinu með þjálfaraskiptum svo við höldum okkur uppi. Eintracht Frankfurt þakkar Armin Veh fyrir störf sín."
„Við vildum ýta vel við liðinu með þjálfaraskiptum svo við höldum okkur uppi. Eintracht Frankfurt þakkar Armin Veh fyrir störf sín."