07.03.16 - 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Rafn Markús aftur í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Halldór Rósmundur Guðjónsson

Mynd: Halldór Rósmundur Guðjónsson
Rafn Markús Vilbergsson er genginn aftur til liðs við Njarðvík eftir tvö ár sem bæði þjálfari og leikmaður hjá Víði.
Þetta er í fimmta sinn sem Rafn Markús gengur til liðs við Njarðvíkinga en hann er gífurlega reynslumikill og á meðal annars sex leiki að baki fyrir Keflavík í Pepsi-deild karla.

Rafn Markús er 33 ára gamall og er gríðarlega fjölhæfur þar sem hann getur spilað nánast hvar sem er á vellinum.
Hans besta tímabil var líklega sumarið 2009 þegar hann gerði 16 mörk í 22 leikjum fyrir Njarðvík og hjálpaði liðinu að komast í 1. deildina.
Njarðvík leikur í 2. deildinni á Íslandsmótinu í sumar og á leik við Vængi Júpíters í Lengjubikarnum annað kvöld.