Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 07. mars 2021 13:15
Aksentije Milisic
Lengjubikarinn: Tokic kláraði Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 1-0 Vestri
1-0 Hrvoje Tokic - Víti ('35)

Það var einn leikur á dagskrá í A-deild Lengjubikarsins í hádeginu í dag en þar mættust Lengjudeildarliðin Selfoss og Vestri.

Þessi leikur var í riðli númer þrjú en honum lauk með 1-0 sigri heimamanna þar sem markamaskínan Hrvoje Tokic gerði eina mark leiksins af vítapunktinum.

Leikurinn var mjög jafn í dag en Selfoss náði að halda búrinu hreinu og klára stigin þrjú.

Þetta var fyrsti sigur Selfoss í Lengjubikarnum í vetur en Vestri er enn án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner