Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. mars 2021 11:40
Aksentije Milisic
PSG sagt ætla reyna við De Gea í sumar
Mynd: Getty Images
Frönsku meistararnir í PSG eru sagðir hafa mikinn áhuga á því að klófesta David De Gea, markvörð Manchester United, næsta sumar.

Mauricio Pochettino er að leita eftir markverði til að koma inn fyrir hinn 34 ára gamla Keylor Navas. Pochettino vill fá De Gea í markið og því mun PSG reyna að bjóða í Spánverjann í sumar.

Mikil óvissa ríkir um framtíð De Gea hjá United en hann hefur nú verið hjá félaginu í tæpan áratug. Hann spilar ekki á næstunni fyrir félagið en hann skrapp til Spánar þar sem hann og unnusta hans eignuðust dóttur á dögunum.

Ef De Gea fer frá félaginu þá gæti það þýtt að Dean Henderson er kominn til að vera markvörður númer eitt hjá félaginu.

PSG getur boðið De Gea 375 þúsund pund á viku en hann er launahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Henderson mun fá á næstu dögum tækifæri til þess að sýna sig og sanna í markinu hjá United og hver veit nema honum takist að geirnegla stöðuna í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner