07.03.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
KV fær Róbert Vattnes og Sigurpál Sören á láni (Staðfest)

Róbert Vattnes í leik með Leiknismönnum

Mynd: Haukur Gunnarsson

Róbert Vattnes í leik með Leiknismönnum

Mynd: Haukur Gunnarsson
KV er að undirbúa sig fyrir átökin í Lengjudeildinni en tveir leikmenn eru gengnir til liðs við félagið á láni en það eru þeir Róbert Vattnes Mbah Nto og Sigurpáll Sören Ingólfsson.
KV vann sér sæti í Lengjudeildinni með góðum árangri í 2. deildinni á síðasta ári og er nú þegar farið að styrkja sig.
Róbert Vattnes er mættur á láni frá Leikni R. en hann er fæddur árið 2001 og á fjóra leiki með meistaraflokki félagsins.
Hann spilaði fjóra leiki með liðinu árið 2020, þar af tvo í Lengjudeildinni og tvo í bikarnum. Róbert spilaði þá með KB í 4. deildinni á síðasta ári.
Sigurpáll Sören kemur frá KR og er fæddur árið 2003 en hann á enn eftir að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik í Íslandsmóti og bikar.