07.03.22 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ottó Björn aftur í Magna (Staðfest)

Mynd: Magni

Mynd: Magni
Ottó Björn Óðinsson er kominn aftur í Magna en hann lék síðast með Magna í Lengjudeildinni sumarið 2020.
Ottó getur spilað í bakverði og á miðjunni. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Hann lék með Dalvík/Reyni í 3. deild í fyrra en hann er uppalinn í KA. Í vetur skipti hann í Þrótt Vogum en er nú komin aftur norður og spilar á Grenivík í sumar.
Hann hefur spila 33 leiki í deild og bikar á ferlinum og skorað tvö mörk. Hann lék í gær sinn fyrsta leik með Magna í vetur, kom inn á í 3-0 sigri gegn Knattspyrnufélagi Austfjarða.
Í vetur hefur Magni fengið þá Angantý Mána Gautason og Tómas Veigar Eiríksson alfarið frá KA, Arek frá Leikni F. og Birki Má Hauksson frá KF eins og þegar hefur verið greint frá.
Þá hafa þeir Örvar Óðinsson og Steinar Ingi Árnason skipt yfir í Magna frá Þór og leikið með liðinu á undirbúningstímabilinu.

Ottó kominn í Magna ⚫️⚪️
— Magni Grenivík (@MagniGrenivik) March 7, 2022
Ottó Björn er kominn aftur í Magna en hann lék síðast með okkur í Lengjudeildinni sumarið 2020. Ottó getur spilað í bakverði og á miðjunni. Hann gerir 2 ára samning við félagið og fögnum við því að fá að njóta krafta hans! #fotboltinet #ástríðan pic.twitter.com/1WGXCB2pCz