07.04.16 - 10:34
Elvar Geir Magnússon
Arnar Sveinn Geirsson í Fram (Staðfest)

Arnar Sveinn í leik með Víkingi Ólafsvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðju- og sóknarmaðurinn Arnar Sveinn Geirsson hefur gert tveggja ára samning við Fram en þetta er staðfest á heimasíðu félagsins.
Arnar er 25 ára en hann lék átta leiki með Víkingi Ólafsvík í fyrra þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni.
Hann er uppalinn hjá Val og á fjölmarga leiki fyrir félagið í efstu deild. Hann lék fyrst með liðinu í Landsbankadeildinni 2008 en hann kom við sögu í einum leik það sumar.

Alls hefur Arnar leikið 108 meistaraflokksleiki í Íslandsmóti og bikar og skorað 12 mörk.
„Hann hefur verið í námi í Bandaríkjunum og kemur til liðs við leikmannahóp Fram núna í lok apríl. Við Framarar bjóðum Arnar Svein innilega velkominn,\" segir í frétt á heimasíðu Fram.
Fram hafnaði í níunda sæti 1. deildarinnar í fyrra en Ásmundur Arnarsson, nýr þjálfari liðsins, sagði í viðtali við Fótbolta.net að stefnan í sumar væri sett á að taka þátt í slagnum um að fara upp í Pepsi-deildina.