07.04.16 - 11:31
Elvar Geir Magnússon
Martin Hummervoll í ÍA (Staðfest)

Hummervoll (til hægri) í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hummervoll (til hægri) í leik með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Norski sóknarmaðurinn Martin Hummervoll er genginn til liðs við ÍA en þetta kemur fram á heimasíðu Skagamanna.
Martin er 20 ára sóknarmaður og kemur á láni frá Viking Stavanger. Hann lék með Keflavík seinni hluta sumarsins í fyrra í Pepsi-deildinni og lék þá 9 leiki og skoraði 3 mörk.
„Martin er góður sóknarmaður og verður góð viðbót við hópinn okkar. Hann þekkir íslenskar aðstæður sem er kostur og við höfum fengið góð meðmæli með honum,\" segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, ánægður með liðsstyrkinn.
Skagamenn, sem höfnuðu í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra, eru nú í æfingaferð í Farum í Danmörku. Martin hitti hópinn í gær.
Komnir í ÍA:
Andri Geir Alexandersson frá HK
Martin Hummervoll á láni frá Viking
Farnir:
Arsenij Buinckij
Ingimar Elí Hlynsson í HK
Marko Andelkovic
Teitur Pétursson í HK