07.04.17 - 07:00
Kristófer Kristjánsson
Afturelding/Fram semur við þrjá nýja leikmenn (Staðfest)

Rakel Lind Ragnarsdóttir og Matthildur Þórðardóttir

Mynd: Afturelding/Fram

Ester Lilja Harðardóttir

Afturelding/Fram hefur samið við þær Ester Lilju, Matthildi og Rakel Lind um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Ester Lilja Harðardóttir kemur til félagsins frá HK/Víking en hún er uppalin hjá Breiðabliki. Hún er fædd 1999 og spilaði tvo leiki í 1. deild kvenna í fyrra.

Matthildur Þórðardóttir er miðvörður sem er uppalin í Stjörnunni. Hún er fædd árið 1993 og hefur, ásamt Stjörnunni, leikið með Álftanesi og Haukum en hún spilaði síðast með Álftanesi sumarið 2014 og er því að taka skóna fram á nýjan leik í sumar.
Rakel Lind Ragnarsdóttir, fædd 1995, kemur frá Grindavík en hún spilar sem framherji. Rakel á 42 leiki og níu mörk í meistaraflokki með HK/Víking og Grindavík. Rakel hefur einnig tekið þátt í verkefnum með U17 landsliði Íslands og skoraði meðal annars mark í sigri gegn Færeyjum.
„Félagið er í óða önn að styrkja hópinn í kringum þær stúlkur sem fyrir eru, byggt er til framtíðar og passa þær Ester Lilja, Matthildur og Rakel Lind vel inn í þau plön og hlakkar félagið til samstarfs við þær stúlkur. Félagið býður stúlkurnar hjartanlega velkomnar til félagsins,\" segir í yfirlýsingu frá félaginu en liðið leikur í 2. deild kvenna.