07.04.17 - 21:00
Stefnir Stefánsson
Marta til Orlando Pride (Staðfest)

Marta

Mynd: Getty Images

Marta

Mynd: Getty Images
Knattspyrnukonan Marta, sem hefur fimm sinnum verið valin besta knattspyrnukona heims, er gengin til liðs við Orlando Pride en hún skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Hin 31 árs gamla Marta hefur áður reynt fyrir sér í Bandaríkjunum en hún var á mála hjá Los Angeles Sol, Gold Pride og Western New York Flash árunum. En hún kemur til Orlando eftir að hafa síðast verið á mála hjá Rosengard í Svíþjóð.
Hún hefur unnið fjöldan allan af einstaklingsverðlaunum þar á meðal gullbolta adidas. Þá hefur hún einning verið valin besti leikmaður heimsmeistaramóts u-19 þegar hún lék með u-19 ára landsliði Brasilíu á Heimsmeistaramótinu í Thailandi 2004. Þá var hún einnig valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins í Kína árið 2007 þar sem hún var markahæst á mótinu með sjö mörk.