07.04.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Stefanía í Val (Staðfest)

Stefanía Ragnarsdóttir og Úlfur Blandon þjálfari Vals.

Mynd: Valur

Valur hefur fengið unglingalandsliðskonuna Stefaníu Ragnarsdóttur til liðs við sig frá Þrótti R. Stefanía fagnar 17 ára afmælisdegi sínum í dag.
Stefanía er miðjumaður en hún hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val.
„Valur er flottur klúbbur með góða aðstöðu. Mér lýst vel á Úlf (Blandon) og Kristínu (Ýr Bjarnadóttur) og tel mig geta bætt mig sem leikmann undir þeirra stjórn og góðum leikmannahópnum. Mínar væntingar fyrir tímabilið er að ná góðum árangri og settum markmiðum,\" sagði Stefanía á heimasíðu Vals.
Stefanía hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar spilað 16 meistaraflokksleiki fyrir Þrótt og skorað í þeim þrjú mörk.
Hún á 14 U-17 landsleiki að baki og einn leik með U19 ár landsliðinu.