mið 07. apríl 2021 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið kvöldsins: Havertz, Grujic og Draxler byrja - Davies á bekk
Mynd: Getty Images
Tveir leikir hefjast klukkan 19:00 í Meistaradeildinni. Um er að ræða seinni tvo leiki 8-liða úrslitanna en fyrri leikirnir á því stigi fara fram í þessari viku.

Leikið er í Munchen og í Sevilla. Bayern tekur á móti PSG og Porto mætir Chelsea. PSG og Chelsea töpuðu sínum leikjum um helgina en Bayern og Porto unnu sína leiki.

Bayern er án Robert Lewandowski og Serge Gnabry vegna meiðsla ogPSG er án Marco Verratti vegna meiðsla og Leandro Paredes tekur út leikbann. Porto er án þeirra Sergio Oliveira og Mehdi Taremi vegna leikbanns og hjá Chelsea er N'Golo Kante tæpur vegna meiðsla. Kante er á bekknum í kvöld.

Hjá Bayern byrja þeir Niklas Sule og Lucas Hernandez í vörninni. Jerome Boateng og Alphonso Davies eru á bekknum. Í liðið PSG byrja þeir Colin Dagba, Danilo og Julian Draxler og Moise Kean er á bekknum.

Hjá Porto koma þeir Marko Grujic og Luis Diaz inn fyrir þá sem taka út leikbann. Þeir Ben Chilwell, Kai Havertz og Reece James byrja hjá Chelsea.

Bayern: Neuer, Pavard, Sule, Alaba, Hernandez, Kimmich, Goretzka, Muller, Sane, Coman, Choupo-Moting.
(Nubel, Martinez, Boateng, Davies, Sarr, Nianzou, Musiala)

PSG: Navas, Dagba, Marquinhos, Kimpembe, Diallo, Danilo, Gueye, Di Maria, Neymar, Mbappe, Draxler.
(Rico, Letellier, Rafinha, Sarbia, Bakker, Pembele, Gharbi, Nagera, Kamara, Kehrer, Kean, Herrera)

Porto: Marchesin, Manafa, Mbemba, Pepe, Sanusi, Corona, Grujic, Uribe, Otavio, Marega, Diaz.
(Ramos, Leite, Loum, Baro, Mario, Anderson, Martinez, Evanilson, Nanu, Sarr, Vieora, Conceicao)

Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Rudiger, Christensen, Chilwell, James, Jorginho, Kovacic, Mount, Havertz, Werner.
(Kepa, Caballero, Alonso, Silva, Kante, Abraham, Pulisic, Zouma, Giroud, Hudson-Odoi, Ziyech, Emerson)

Athugasemdir
banner
banner
banner