Serge Gnabry, kantmaður Bayern München, mun missa af leiknum gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í kvöld eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.
Þetta er í annað sinn sem Gnabry greinist með veiruna en síðast var niðurstaðan fölsk.
Líðan Gnabry er góð en hann er í einangrun heima hjá sér. Hann mun horfa á leikinn heima í kvöld.
Robert Lewandowski er ekki heldur með Bayern í kvöld vegna meiðsla.
Í liði PSG voru Ítalarnir Alessandro Florenzi og Marco Verratti greindir með veiruna. Þeir verða ekki með í kvöld.
Leikurinn hefst klukkan 19:00 en þetta er fyrri leikur liðanna í átta-liða úrslitunum. Leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli Bayern í Þýskalandi.
Athugasemdir