Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 07. apríl 2021 12:51
Elvar Geir Magnússon
Rashford fer með til Granada en spilar ekki 90 mínútur
Mynd: Getty Images
Annað kvöld verður fyrri leikur Granada og Manchester United í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Ole Gunnar Solskjær sagði frá því á fréttamannafundi í dag að sóknarmaðurinn Marcus Rashford færi með í leikinn.

„Ég vel það lið sem ég tel líklegast til að vinna leikinn. Það er ýmislegt sem þarf að huga að; hver getur spilað 90? Hver getur spilað fjóra eða fimm leiki í röð? Hver þarf hvíld? Við skoðum alltaf stöðuna að morgni leikdags," segir Solskjær.

„Marcus ferðast með í leikinn og við tökum ákvörðun á morgun um það hvort hann verði í byrjunarliðinu eða á bekknum. Ég held að hann spili ekki 90 mínútur."
Athugasemdir
banner
banner
banner