Fotbolti.net
07.05.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Auðun Helgason í Sindra (Staðfest)

Auðun Helgason í Sindra (Staðfest)
Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Varnarmaðurinn reyndi Auðun Helgason hefur ákveðið að fá félagaskipti í Sindra og möguleiki er á að hann spili með liðinu í 2. deildinni í sumar.

Hinn 38 ára gamli Auðun sleit krossband í leik með Selfyssingum fyrir tæplega tveimur árum og hefur ekkert spilað síðan þá. Auðun er að flytja með fjölskyldu sinni á Höfn í Hornafirði og hann hefur því ákveðið að fá félagaskipti í Sindra.
,,Ég ætla að ganga frá félagaskiptum áður en glugginn lokar. Óli (Stefán Flóventsson, þjálfari Sindra) hringdi í mig og hann vill hafa eitthvað back-up. Ég samykkti að skipta og síðan sjáum við til,\" sagði Auðun við Fótbolta.net.

,,Konan er að byrja að vinna 1. júní en ég byrja seinna í sumar. Hugmyndin er að flytja austur í byrjun júní og það er aldrei að vita hvað ég geri.\"

,,Í júní verða tvö ár síðan að ég spilaði kappleik og ég hef ekkert verið að æfa þannig að ég veit ekki hvernig þetta verður.\"


Sindri er nýliði í 2. deildinni en liðinu er spáð ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar. Liðið mætir Hamar í fyrstu umferðinni næstkomandi laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.