Fotbolti.net
07.05.13 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson

Bandarískur markvörður semur við Þór/KA (Staðfest)

Bandarískur markvörður semur við Þór/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur samið við bandaríska markvörðinn, Victoriu Alonzo, en hún fær leikheimild frá og með morgundeginum.
Kaitlyn Savage meiddist á dögunum leik með Þór/KA og er ljóst að hún kemur til með að missa af byrjun móts, en Helena Jónsdóttir hefur staðið í búrinu og gerði vel þegar Þór/KA vann Stjörnuna í vítaspyrnukeppni í Meistarakeppni KSÍ, þar sem hún varði tvær spyrnur.

Liðið hefur nú fengið til sín bandarískan markvörð, en Jóhann Kristinn, þjálfari liðsins, staðfesti við Fótbolta.net í dag að leikmaðurinn væri kominn til félagsins og að hún myndi fá leikheimild á morgun.

Alonzo, sem er 22 ára gömul, er afar öflugur markvörður, en hún hefur bæði spilað í Finnlandi með Pallokissat Kuopio og New England Mutiny, ásamt því að hafa leikið með háskólaliði í Miami.

Hún setti þar skólamet þar sem hún hélt hreinu í 25 leikjum af 37, svo Akureyringar binda miklar vonir við hana.

Hún verður ekki með liðinu gegn FH í kvöld er liðin mætast í Boganum, en hún verður með heimild í næstu umferð er Þór/KA mætir Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.