07.05.13 - 16:21
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Saint-Etienne í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið til sín vænan styrk fyrir komandi átök í Pepsi-deild kvenna, en félagið samdi í dag við bandaríska leikmanninn, Megan Manthey, sem lék síðast með Saint-Etienne í Frakklandi.
Manthey er 24 ára gömul og spilar stöðu framherja, en það hefur sárvantað breidd í fremstu víglínu og kemur hún til með að styrka liðið gríðarlega.
Hún lék síðast með Saint-Etienne í Frakklandi, en þar áður lék hún með Hjorring í dönsku deildinni og Seattle Sounders í Bandaríkjunum.
Manthey verður aftur á móti frá í fyrstu umferð deildarinnar, en er samt sem áður komin með keppnisleyfi fyrir leikinn gegn ÍBV í kvöld.