07.05.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Marcia Rosa Silva í Aftureldingu (Staðfest)

Marcia Rosa Silva spilar með Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marcia Rosa Silva spilar með Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Marcia Rosa Silva er gengin til liðs við Aftureldingu að nýju og hefur þegar fengið leikheimild með liðinu.
Hún má því spila með Aftureldingu þegar liðið sækir Val heim í fyrstu umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld..
Silva sem er 32 ára gömul lék síðast með Aftureldingu sumarið 2011 þegar hún spilaði 15 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hún hafði áður leikið með ÍA í 1. deildinni árin 2008 og 2009.
Silva sem er 32 ára gömul lék síðast með Aftureldingu sumarið 2011 þegar hún spilaði 15 leiki í deild og bikar og skoraði eitt mark.
Hún hafði áður leikið með ÍA í 1. deildinni árin 2008 og 2009.
