Fotbolti.net
07.05.14 - 12:39
Elvar Geir Magnússon

Garry Monk ráðinn stjóri Swansea til þriggja ára (Staðfest)

Garry Monk ráðinn stjóri Swansea til þriggja ára (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Garry Monk hefur skrifað undir þriggja ára samning við Swansea og heldur því starfinu sem knattspyrnustjóri liðsins.

Monk hefur haldið um stjórnartaumana síðan Michael Laudrup var rekinn 4. febrúar. Monk náði að halda Swansea uppi eftir erfitt tímabil en hann var upphaflega ráðinn út tímabilið.
„Við erum í skýjunum með að tilkynna það að Garry verður áfram okkar yfirþjálfari,\" segir Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea.

„Það var einróma álit stjórnarinnar að rétt væri að bjóða honum að halda áfram sínu starfi. Við þurfum að leita í grunninn og það sem hefur fært okkur velgengni undanfarinna ára.\"

„Garry hefur lagt mikið á sig fyrir félagið, hann var fljótur að aðlagast og náði í þau stig sem við þurftum til að halda okkar sæti í deild þeirra bestu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.