Fotbolti.net
07.05.14 - 20:58
Brynjar Ingi Erluson

Magnús Már Einarsson í Leikni (Staðfest)

Magnús Már með Leiknistreyjuna

Magnús Már með Leiknistreyjuna

Canon

Mynd: Leiknir.com

Leiknir úr Breiðholti fékk í kvöld vænan liðsstyrk fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en Magnús Már Einarsson kom frá Aftureldingu. Þetta staðfesti Magnús við Fótbolta.net í kvöld.
Magnús Már, sem er 25 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður, er uppalinn í Aftureldingu og hefur leikið 127 leiki og gert 26 mörk fyrir félagið en hann ákvað að söðla um eftir síðustu leiktíð.

Hann hefur undanfarnar vikur æft með Leiknismönnum og í kvöld var svo gengið frá félagaskiptunum. Hann ætti því að vera klár fyrir fyrsta leik liðsins í fyrstu deildinni en liðið mætir Grindavík á laugardag.

Magnús mun hafa nóg fyrir stafni i í fótboltanum í sumar en eins og flestum ætti að vera kunnugt þá er hann ritstjóri Fótbolta.net

Það komu þá fleiri fréttir í kvöld úr herbúðum Leiknis en Fannar Þór Arnarsson mun leika með Leiknismönnum í allt sumar og þá er annar leikmaður á leiðinni, Brandon Scott, en hann á þó enn eftir að fá leikheimild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.