Fotbolti.net
07.05.14 - 19:58
Brynjar Ingi Erluson

Ólafur Örn Eyjólfsson í KV (Staðfest)

Ólafur Örn Eyjólfsson í leik með HK

Ólafur Örn Eyjólfsson í leik með HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KV í fyrstu deildinni hefur fengið hinn unga og efnilega Ólaf Örn Eyjólfsson til liðs við sig frá Víkingi Reykjavík.
Ólafur Örn, sem er fæddur árið 1994, er uppalinn hjá HK, en hann á samtals fimm leiki að baki með meistaraflokki félagsins í bæði deild- og bikar.

Hann gekk til liðs við Víking á síðasta ári en var þá að glíma við meiðsli. Hann er nú kominn í fyrstu deildina þar sem hann mun spila með KV í sumar en Vesturbæingar binda miklar vonir við hann.

„Ólafur er mjög hæfileikaríkur leikmaður og kemur til með að henta KV vel í deildinni í sumar. Strax byrjaður að rífa kjaft og á því eftir að smellpassa í hópinn,\" sagði Páll Kristjánsson um Ólaf.

Fyrsti leikur KV í fyrstu deildinni verður einmitt gegn uppeldisfélagi Ólafs en liðin mætast í Egilshöll á föstudag klukkan 19:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.