Fotbolti.net
07.05.14 - 10:54
Magnús Már Einarsson

Ómar Karl í Hauka (Staðfest)

Ómar Karl í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar hafa fengið kantmanninn Ómar Karl Sigurðsson til liðs við sig.
Ómar er 31 árs gamall en hann lék tæplega 100 leiki með Haukum á árunum 2002-2008.

Árin 2010 og 2011 lék Ómar síðan nokkra leiki með Keflvíkingum í efstu deild.

Ómar hefur verið í Danmörku undanfarin misseri en hann er nú kominn heim og mun leika með Haukum í 1. deildinni í sumar.

Haukar mæta Þrótti í 1. umferðinni í 1. deildinni á föstudagskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.