Fotbolti.net
07.05.16 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Allegri framlengir við Juventus til 2018 (Staðfest)

Allegri framlengir við Juventus til 2018 (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Massimiliano Allegri þjálfari Juventus er búinn að framlengja samning sinn við félagið til 2018.

Allegri hefur náð mjög góðum árangri með Juventus og kom liðinu meðal annars í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra.
Allegri var orðaður við ýmis stórlið í Evrópu í vor, sérstaklega Chelsea og ítalska landsliðið, en nú er staðfest að hann verður áfram hjá Ítalíumeisturunum.

„Ég væri til í að vera áfram hjá Juventus næstu 10 eða 20 ár. Kannski ekki 20 því ég ætla mér að hætta áður en ég byrja að fá elliglöp,\" sagði Allegri kátur.

„Þegar maður stýrir svona stóru félagi þá er nauðsynlegt að ná góðum úrslitum og vinna keppnir. Svo eru það líka litlu hlutirnir sem gefa mikið, til dæmis þegar maður sér einstaklinga bæta sig á milli vikna.

„Það hefur veitt mér mikla ánægju að fylgjast með leikmönnum eins og Stefano Sturaro og Paulo Dybala blómstra á tímabilinu.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.