Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Orri eftir stærstu stund ferilsins: Vil vera einn besti leikmaður spænsku deildarinnar
Vann í síðasta mánuði sinn þriðja titil sem atvinnumaður - og þann stærsta til þessa.
Vann í síðasta mánuði sinn þriðja titil sem atvinnumaður - og þann stærsta til þessa.
Mynd: Instagram/orrioskarsson
Mynd: EPA
Skoraði sjötta deildarmarkið sitt á tímabilinu gegn Vallecano.
Skoraði sjötta deildarmarkið sitt á tímabilinu gegn Vallecano.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
'Ég hef alveg átt góð spjöll við kærustuna mína um hvað mig langar og hverjir draumarnir mínir voru þegar ég kynntist henni fyrst og hvað ég er búinn að ná að gera á síðustu þremur árum.'
'Ég hef alveg átt góð spjöll við kærustuna mína um hvað mig langar og hverjir draumarnir mínir voru þegar ég kynntist henni fyrst og hvað ég er búinn að ná að gera á síðustu þremur árum.'
Mynd: Instagram/orrioskarsson
Julian Alvarez skoraði annað mark Atletico í úrslitaleiknum og þá var meðbyrinn með Atletco.
Julian Alvarez skoraði annað mark Atletico í úrslitaleiknum og þá var meðbyrinn með Atletco.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
'Að geta tekið lærdóminn frá þessum mönnum sem að hafa spilað á þessu leveli svona lengi og alltaf að vera að læra eitthvað nýtt og alltaf að finna bætinguna á hverjum degi er mjög einstakt og eitthvað sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlu'
'Að geta tekið lærdóminn frá þessum mönnum sem að hafa spilað á þessu leveli svona lengi og alltaf að vera að læra eitthvað nýtt og alltaf að finna bætinguna á hverjum degi er mjög einstakt og eitthvað sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlu'
Mynd: EPA
Mynd: EPA
'Það að vera hungraður og vilja árangur, bæði á liðsplani og á einstaklingsplani, er það mikilvægasta fyrir fótboltamenn'
'Það að vera hungraður og vilja árangur, bæði á liðsplani og á einstaklingsplani, er það mikilvægasta fyrir fótboltamenn'
Mynd: KSÍ
'Þá trúir maður bara á að þetta sé á leiðinni'
'Þá trúir maður bara á að þetta sé á leiðinni'
Mynd: EPA
'Ég er náttúrulega búinn að vera mikið meiddur og mér líður eins og tímabilið mitt sé rétt að byrja'
'Ég er náttúrulega búinn að vera mikið meiddur og mér líður eins og tímabilið mitt sé rétt að byrja'
Mynd: KSÍ
Þann 18. apríl varð Orri Steinn Óskarsson bikarmeistari með liði sínu Real Sociedad þegar liðið sigraði Atletico Madrid í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik spænska konungsbikarsins.

Orri ræddi við Fótbolta.net um úrslitaleikinn, fögnuðinn, vítaspyrnuna sem hann tók, tímabilið og ýmislegt annað.

Einstakt og mjög stórt
Getur þú líst hvernig það er að verða orðinn spænskur bikarmeistari?

„Það er auðvitað bara mjög mikill heiður, mjög, mjög stórt, maður einhvern vegin áttaði sig ekki á því fyrr en maður var kominn í leikinn hvað þetta er stórt og hversu mikið vægi þessi bikarkeppni hefur í fótboltanum Það að ná að komast yfir línuna með þessu liði og þessum klúbb er bara mjög einstakt, mjög góð tilfinning og ég er mjög stoltur af því," segir Orri Steinn.

Er þetta það stærsta á ferlinum til þessa?

„Þetta var það klárlega, þessi leikur var með því stærsta á ferlinum og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma á mínum fótboltaferli. Ég held að fyrsti bikarinn í topp fimm deild sé eitthvað einstakt á ferli leikmanns."

Risastórt fyrir félagið
Sociedad var að vinna konungsbikarinn, Copa del Rey, í fjórða sinn og í fyrsta sinn síðan 2020. Er hægt að útskýra hversu stórt það er fyrir Sociedad að vinna bikarinn?

„Þetta er auðvitað risastórt, það er ekki oft þar sem þessi klúbbur vinnur titla. Félagið gerði það síðast þegar að Covid var og menn fengu ekkert að fagna með sínu fólki. Að fá að vera vitni að öllu fólkinu hérna í skrúðgöngunni og svona; þar sem maður fékk að sjá allan bæinn og gleðina í augunum þeirra, það var bara eins og töfrum líkt. Að geta gefið fólkinu þessa tilfinningu er bara mjög einstakt og frábært."

Gæsahúð í 20 mínútur
Í útsendingu frá leiknum sást og heyrðist að stemningin á vellinum væri mikil og tilfinningin eins og andrúmsloftið hefði verið rafmagnað.

„Já, öll fjölskyldan mín var þarna og trúði ekki sínum eigin augum hvernig stemningin var og ég áttaði mig ekki heldur á því að þetta yrði svona fyrr en ég hljóp út í upphitun. Þetta var rosalegt. Maður getur einhvern veginn ekki lýst því. Auðvitað er maður einbeittur að leiknum, en samt vildi maður taka þetta allt inn og reyna að horfa upp í stúkuna á fólk syngja lagið okkar. Þetta var gæsahúð í svona 20 mínútur."

Slegnir eftir markið frá Alvarez
Var einhver tilfinning á tímapunkti í leiknum að annað liðið gæti verið að taka sigurinn?

„Það var þegar (Julian) Alvarez var búinn að skora 2-2 markið fyrir þá, þá fengu þeir smá auka orku og voru með drifkraftinn í smá tíma fyrir framlenginguna. En í framlengingunni fannst mér þetta mjög jafnt og mér fannst við koma einhvern veginn til baka, ná aðeins meira orkustigi. En það er auðvitað erfitt þegar að maður er búinn að vera að halda út í smá tíma og þeir ná að jafna svona stuttu fyrir leikslok, það er mjög mikil svona alvöru kýling í magann og við þurftum einhvern veginn að reyna að halda þetta út fram að framlengingu. Ég upplifði menn mjög þreytta og slegna eftir markið."

Reyndi að hjálpa liðinu eins og hann gat
Hvaða skilaboð færðu þegar þú kemur inn á?

„Það var bara að halda þessu mjög þéttu í pressunni en ekki vera að taka of margar ónauðsynlegar pressur. Ég átti líka að reyna að hjálpa liðinu í uppbyggingu sókna; að halda í boltann þegar við gátum komist upp og reyna að sækja hratt. Mér fannst það heppnast mjög vel, sérstaklega í venjulegum leiktíma. Auðvitað var þreyta í mönnum í framlengingunni, menn voru rólegri og menn voru að einhverju leyti að reyna halda út. Ég reyndi að hjálpa liðinu eins og ég gat."

Alltaf tilbúinn
Maður ætlar að það sé búið að kortleggja svolítið mikið í kringum svona stóra leiki. Veist þú þegar komið er að leikvanginum svona u.þ.b. hvert þitt hlutverk verður?

„Já, það er yfirleitt þannig sem framherji að maður býst alltaf við því að koma inn í leikinn, en síðan auðvitað bara fer það eftir því hvernig leikmyndin er og hvað er að gerast í leiknum. En mér líður eins og ég geti hjálpað með bæði; að geta haldið út úrslitunum og líka reynt að sækja mark. Ég er tilbúinn að koma inn á hvenær sem er, þótt að ég vilji helst bara vera í byrjunarliðinu. En þó maður sé á bekknum, þá á maður alltaf að vera tilbúinn að hjálpa og ég var tilbúinn og fannst leikurinn yfir höfuð heppnast mjög vel.

Hefði getað flogið 20 metra yfir
Þú færð færi vinstra megin í teignum í framlengingunni. Hugsar þú á því augnabliki að þú hefðir átt að gera betur?

„Já ég hugsa auðvitað að ég eigi að skora úr svona færi, en í augnablikinu þá var þetta erfiður vinkill og ég reyndi nú bara að koma boltanum á markið í staðinn fyrir að vera að reyna eitthvað að dúndra honum. Ég ákvað bara að lifa með því að koma boltanum frekar á markið frekar miðsvæðis frekar en að setja hann í hornið, og markmaðurinn tók það. Þetta eru bara svona ákvarðanir sem maður þarf að taka á millisekúndu og ég sé ekki eftir því, en síðan hefði útkoman kannski getað verið önnur ef maður hefði bara dúndrað í hann og hann hefði flogið 20 metra yfir í markið."

Treystir sér alltaf til þess að fara á punktinn
Hvernig virkar þetta með vítaspyrnukeppnina, segist þú geta tekið víti og setur þjálfarinn þig bara einhvers staðar á listann?

„Það var þjálfarinn sem sér um föst leikatriði sem að sá um það. Ég er nú yfirleitt frekar góður í vítum og hann setti mig bara númer tvö, sem ég var bara mjög ánægður með. Ég treysti mér alltaf til þess að fara á punktinn, leið vel með það, jafnvel á svona augnabliki þar sem mikið er undir. Það fór svo eins og það fór."

Myndi fara aftur á punktinn þrátt fyrir klikkið
Þeir byrjuðu að klikka á sínum fyrstu tveimur vítum, hefur það einhver áhrif á þig komandi inn í þitt víti?

„Já, svo er það það... ég var ekki mikið að pæla í því, maður reynir auðvitað bara að framkvæma þetta eins vel og maður getur. Ég fann ekkert fyrir eitthvað minni pressu, jafnvel þó að þeir væru búnir að klúðra tvisvar, maður reynir að vera eins rólegur og maður getur. Ég hitti hann illa og það er bara eins og það er, ég myndi nú samt alltaf fara á punktinn aftur ef að ég yrði spurður, en síðan var ég bara með góða liðsfélaga á bakvið mig sem að kláruðu þetta þannig ég hafði engar áhyggjur."

Stressaður í aðdraganda vítaspyrnunnar
Hvaða hugsanir fara í gegnum hausinn á manni þegar maður er að fara að taka vítaspyrnu í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik í spænska bikarnum?

„Ég myndi segja að ég hafi verið töluvert stressaðri fyrir vítið, í aðdragandanum, en þegar maður er kominn á punktinn þá er maður með hausinn alveg fókuseraðan á boltann, markið og markmanninn og er bara í augnablikinu. Allir 70 þúsund áhorfendurnir blokkast bara út, maður reynir bara að vera eins rólegur og maður getur."

Gleymdi öllu í nokkrar mínútur
Þegar ykkar fimmta víti klárast, Pablo Marín skorar. Hvaða hugsanir fara í gegn þegar þú heyrir lokaflautið, var það léttir?

„Ég myndi ekki segja léttir, ég var bara mjög glaður, mjög sáttur og ég held að fólk hafi ekki verið mikið að pæla í því að ég hafi klúðrað - ef það hefði verið einhver annar að þá hefði fólk ekki mikið pælt í því."

„Að komast að endalokum og vera með bikarinn í hendinni, það skipti mestu máli og það var bara geggjað. Þegar síðasta spyrnan fór inn þá mundi ég ekki einu sinni í hvaða horn ég skaut, það var bara mjög mikil gleði og mikill fagnaður og maður bara gleymdi öllu í nokkrar mínútur."


Minnir sig á að hann vill meira
Landsliðsfyrirliðinn hefur á stuttum ferli þegar unnið þrjá titla; deild og bikar með FC Kaupmannahöfn og bikarinn með Real Sociedad. Hann hefur spilað tvö tímabil í Meistaradeildinni og spilað 17 landsleiki.

Ef við förum í heildarmyndina, hvernig líður þér með staðinn sem þú ert á í þínum ferli? Þetta tímabil hefur einkennst af meiðslum, en þú ert, 21 árs og orðinn spænskur bikarmeistari, spilar í einni stærstu deild í heimi. Þetta er væntanlega það sem þú vildir vera að gera, eða hvað?

„Jú, þetta er það, en mér finnst samt svo mikilvægt að vera ekki sáttur með það, ég reyni alltaf að minna mig á að ég vil meira. Ég vil ekkert bara vera í spænsku deildinni, ég vil vera einn besti leikmaður deildarinnar. Ég er að stefna á það og það er einhvern veginn aldrei neitt nóg fyrir mig, sem er kostur og galli, þannig að ég reyni alltaf að ýta á það. Ég er kominn með sex mörk núna í deildinni á þessu tímabili, þrátt fyrir mikið af meiðslum og veseni þannig að ég er að byggja mig hægt og rólega upp, og búnir að vera góðir leikir upp á síðkastið og fleiri mínútur og svona þannig að ég er ennþá að vinna að mínum markmiðum og ég er einhvern veginn bara alls ekki klár í að tímabilið klárist."

Tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut
Að vera í liði eins og Sociedad sem vill vera í efri hlutanum og gera einhverja hluti í Evrópubaráttu og svoleiðis. Það eru leikmenn þarna sem eru búnir að spila í ensku úrvalsdeildinni og í stórum liðum í Evrópu. Hugsaðir þú þetta fyrir 2-3 árum, að þú yrðir kominn á þennan stað?

„Nei, það gerði ég ekki. Ég hafði auðvitað alltaf sett það sem markmið að vera kominn á svona stað og kannski ekki alveg svona snemma en þegar tækifærið kemur þá má ekki hugsa sig tvisvar um. Að geta tekið lærdóminn frá þessum mönnum sem að hafa spilað á þessu leveli svona lengi og alltaf að vera að læra eitthvað nýtt og alltaf að finna bætinguna á hverjum degi er mjög einstakt og eitthvað sem ég tek ekki sem sjálfsögðum hlut."

„Að fá að vera partur af þessu og vera á þessum stað á þessum aldri er líka mjög jákvæður hlutur og að geta lært fullt og bætt sig á hverjum degi, það er það sem skiptir mestu máli. Ég held að fólk gleymi því stundum að ég er bara 21 árs og það skiptir bara mjög miklu máli ennþá að ég sé að bæta mig og ég á fullt inni."


Hungrið og viljinn það mikilvægasta fyrir fótboltamenn
Þarft þú stundum sjálfur að klípa aðeins í þig bara og minna þig á að þetta sé að gerast?

„Jájá, ég hef alveg átt góð spjöll við kærustuna mína um hvað mig langar og hverjir draumarnir mínir voru þegar ég kynntist henni fyrst og hvað ég er búinn að ná að gera á síðustu þremur árum. Það er auðvitað bara búið að vera frábært, en maður þarf svo að minna sig á það að ástæðan fyrir því að allt þetta gerðist er út af hungrinu og viljanum til að bæta sig og vera eins góður og maður getur verið á hverjum degi. Það að vera hungraður og vilja árangur, bæði á liðsplani og á einstaklingsplani, er það mikilvægasta fyrir fótboltamenn."

Endurkoma og sigur gegn grönnunum
Gerum aðeins upp þennan bikartitil, á hvaða tímapunkti hugsið þið í hópnum að það sé raunverulegur möguleiki á því að þið getið unnið þetta?

„Það er góð spurning. Ég kom ekki inn fyrr en í 16 liða úrslitunum, og einhvern veginn, við tókum rosalega endurkomu þá, skoruðum á 95. mínútu, komum okkur í framlengingu og unnum í vító. Þá hugsaði maður að við gætum alveg eins tekið þetta alla leið"

„En það er líka búið að vera mjög góð saga með okkur í bikarnum síðustu ár og við höfum alltaf verið að ýta á að komast í undanúrslit og úrslitin, þetta er alltaf keppni sem að við höfum verið mjög sterkir í, þannig að trúin er náttúrulega til staðar. En síðan kemur alltaf einhver tímapunktur þar sem maður hugsar að við eigum alveg virkilega séns."

„Og síðan líka leikirnir á móti Bilbao í undanúrslitunum þar sem við settum saman tvo mjög þroskaða og sterka leiki. Þá trúir maður bara á að þetta sé á leiðinni."


Er það auka krydd í þessu, að vinna Bilbao í undanúrslitunum?

„Já, það er náttúrulega nágrannaslagur og alltaf gott að vinna þá. Það bætir auðvitað smá kryddi á það að þetta sé undanúrslitaleikur og 'derby'. Að geta unnið þá, það gaf okkur líka mikinn meðbyr í deildina að geta haldið áfram á því stigi sem við vildum."

Smá óþægilegt að hugsa til þess að tímabilinu sé að ljúka
Framundan hjá Orra eru fjórir deildarleikir. Hann skoraði gegn Vallecano í lok síðasta mánaðar og er kominn með sex deildarmörk á tímabilinu. Hvað vilt þú fá út úr restinni af tímabilinu?

„Fyrir okkur sem lið vil ég auðvitað að endum eins ofarlega og hægt er í deildinni, jafnvel þó við séum komnir með Evrópusæti. Mér finnst mikilvægt að við byggjum upp líka góða tilfinningu fyrir næsta tímabil, höldum frammistöðunni góðri og endum í eins góðri stöðu og hægt er."

„Persónulega langar mig að spila eins margar mínútur og ég get og skora aðeins fleiri mörk."

„Ég er náttúrulega búinn að vera mikið meiddur og mér líður eins og tímabilið mitt sé rétt að byrja. Það er smá óþægileg tilfinning en samt líka mikið búið að gerast og búið að vera mikið álag og svona."


Fleiri leikir, fleiri verðlaun
Sociedad gekk ekki vel framan af tímabili og skipt var um þjálfara í desember. Gengið í deildinni hefur verið betra síðan.

Létti það á ykkur í deildinni þegar þið komust lengra í bikarnum, að liðið væri að berjast á tveimur vígstöðvum?

„Það var auðvitað mjög gaman að það gekk vel, það voru bara fleiri leikir og fleiri verðlaun. Það að vera með hausinn á tveimur stöðum er mjög krefjandi en samt líka mjög gaman og við viljum vera að spila á þriggja daga fresti og vera að keppa líka á móti góðum liðum á þriggja daga fresti. Það er hlutur sem maður getur ekki tekið sem sjálfsögðum hlut."

„Öll liðin í spænsku úrvalsdeildinni eru auðvitað mjög góð, en að geta verið að spila leiki í tveimur keppnum, spila á þriggja daga fresti, er mjög gott fyrir okkur sem lið,"
segir Orri Steinn.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 34 29 1 4 89 31 +58 88
2 Real Madrid 34 24 5 5 70 31 +39 77
3 Villarreal 34 21 5 8 64 39 +25 68
4 Atletico Madrid 34 19 6 9 58 37 +21 63
5 Betis 34 13 14 7 52 41 +11 53
6 Celta 34 12 11 11 48 44 +4 47
7 Getafe 34 13 5 16 28 36 -8 44
8 Athletic 34 13 5 16 40 50 -10 44
9 Real Sociedad 34 11 10 13 52 53 -1 43
10 Osasuna 34 11 9 14 40 42 -2 42
11 Vallecano 34 10 12 12 35 41 -6 42
12 Valencia 34 10 9 15 37 50 -13 39
13 Espanyol 34 10 9 15 37 51 -14 39
14 Elche 34 9 11 14 45 53 -8 38
15 Mallorca 34 10 8 16 42 51 -9 38
16 Girona 34 9 11 14 36 51 -15 38
17 Sevilla 34 10 7 17 41 55 -14 37
18 Alaves 34 9 9 16 40 53 -13 36
19 Levante 34 8 9 17 38 55 -17 33
20 Oviedo 34 6 10 18 26 54 -28 28
Slapp
banner
banner
banner
banner