Fotbolti.net
07.05.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Orri Steinn sá fyrsti síðan 2009: Mjög stoltur af því

Orri Steinn sá fyrsti síðan 2009: Mjög stoltur af því
Canon

Mynd: Samsett

Í síðasta mánuði kom Orri Steinn Óskarsson sér í afar fámennan hóp Íslendinga sem hafa unnið bikarkeppni hjá einni af toppþjóðunum í evrópska fótboltanum. RÚV vakti athygli á. Real Socedad vann Atletico Madrid í úrslitaleik spænska konungsbikarsins 18. apríl.
Orri þurfti að manna sig upp í að syngja lagið fyrir framan tugi þúsunda
TENGT EFNI

Orri þurfti að manna sig upp í að syngja lagið fyrir framan tugi þúsunda

Aðeins fimm íslenskir karlkyns fótboltamenn hafa unnið aðalbikarkeppni í landi (Spáni) sem talið er eitt af fimm bestu í Evrópu ásamt Englandi, Þýskalandi, Ítalíu og Frakklandi.

Sá síðasti á undan Orra var Eiður Smári Guðjohnsen sem vann spænska konungsbikarinn árið 2009 sem leikmaður Barcelona. Áður höfðu þeir Ásgeir Sigurvinsson (Bayern München, 1982),
Lárus Guðmundsson (Bayer Uerdingen,1985) og Hermann Hreiðarsson (Portsmouth, 2008) unnið sambærilegan titil.

Orri ræddi við Fótbolta.net og var spurður út í þessa staðreynd.

„Ég fékk að vita það skömmu eftir sigurinn (að ég væri fyrsti Íslendingurinn síðan 2009). Það er bara mjög skemmtilegt og gaman að geta fetað í fótspor góðs leikmanns."

„Ég er mjög stoltur af því og þetta er ekki eitthvað sem allir ná að upplifa á sínum ferli. Ég tek öllu sem kemur til mín og ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær. Ég reyni að njóta þess og bæta mig. Þetta er bara klikkað líf,"
segir Orri Steinn.
'Ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær'

'Ég reyni auðvitað bara að skrifa mína eigin sögu, reyni bara að ná eins miklu og ég get út úr þessum stutta ferli sem maður fær'

Canon

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.