Fotbolti.net
07.06.13 - 21:05
Fótbolti.net

Twitter - Óli Geir hefði átt að sjá um Slóvenana

Um 9200 áhorfendur mættu á völlinn í kvöld.

Um 9200 áhorfendur mættu á völlinn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Ísland tapaði 4-2 gegn Slóvenum í undankeppni HM í kvöld. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter á meðan á leik stóð.


Guðmundur Steinarsson:
Hefði verið gott að Óli Geir hefði séð um Slóvenana. Þá hefðu þeir ekki spilað í kvöld. #áframísland
Fengu allir leikmenn Slóvena bara 500 kall til að fara í klippingu hjá mömmu sinni. #klippasítt #hæfilegawild

Daníel Hjaltason:
Við verðum jafngóðir í fótb og handb eftir 5 ár (staðfest)

Jón Stefán Jónsson:
Jesús hvað þetta hrundi þegar Aron fór útaf. Varnarleikur öftustu línu mjög dapur líka. #áframmeðþettasamt #ísland

Máni Pétursson:
Erum ekki bunin að fá svona leik i 7 ár. Svo eg segi takk fyrir það. Við komum tilbaka #flottlið

Óttar K. Bjarnason:
Ég er svosem ekki hlutlaus en við eigum ekki skilið að tapa þessum leik. Hvað þá 4-2.

Ásgeir Jónsson:
Íslenska vörnin er svo slök. Alltaf óvaldaður maður á vítateigslínunni og við að leiðast inni í markteig.

Hrannar Már ‏Gunnarsson:
Það er allavega jákvætt að það er bara 1 stig í annað sætið, þetta er enn í okkar höndum #WC2014

Einar Svan Gíslason:
Það er *alltaf* óásættanlegt að fá á sig 4 mörk á heimavelli í landsleik #fotbolti #brotlending

Baldur Elíasson :
ef okkar hægri og vinstri bakvordur væru i sama klassa og restin af lidinu tha værum vid med gott lid en ekki sæmilegt #fotbolti

Sóli Hólm:
Er með fimm ára barn í stúku sem angar af kaupstaðalykt - og mér finnst það bara vinalegt. Enginn að haga sér illa, bara gleði. #aframisland

Hans Steinar Bjarnason:
Var þetta leynivopnið sem Katanec þjálfari talaði um? #leikaraskapur #víti

Helgi Óttarr Hafsteinsson:
Lìnuvörður 1 er gjörsamlega að skíta uppá bak. Rangstæða í fyrsta markinu og svo sleppir hann augljósri hendi innì teig #Germany #1940

Einar Guðnason:
Eiður er svo mikill yfirburðar fótboltamaður

Milos Milojevic:
Birkir Bjarna 1:1! Skil ekki að þessi maður er ekki með samning með félagið í einn af 5 bestu deildum#toppleikmaður

Guðmundur Benediktsson:
Alvöru sending frá Emil!!!!

Fanndís Friðriksdóttir:
Gæsahúð í klappinu #HemmiGunn

Róbert Jóhannsson:
Það besta við að horfa á leikinn heima er að maður getur notað hálfleikinn í að ganga frá í eldhúsinu. #einmitt

Gunnar Stígur Reynisson:
Sá ég rétt. Stóð Sigthorsson á búningnum? th ekki þ. emmm... afhverju????

Runólfur Þórhallsson:
Er ég sá eini sem finnst að Gylfi ætti að vera á landinu þegar landsleikurinn fer fram þó hann sé í banni ? #Þjóðarstoltið
Twitter - Óli Geir hefði átt að sjá um Slóvenana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Twitter - Óli Geir hefði átt að sjá um Slóvenana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Twitter - Óli Geir hefði átt að sjá um Slóvenana
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.