Fotbolti.net
07.06.13 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Wayne Bridge til Reading (Staðfest)

Wayne Bridge til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Wayne Bridge hefur gengið í raðir Reading frá Manchester City og skrifað undir eins árs samning við félagið. Reading féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.
Þetta eru fyrstu kaup Nigel Adkins í sumar.

Bridge er 32 ára og er fyrrum leikmaður Southampton, Chelsea og enska landsliðið. Hann gekk í raðir City 2009 en var meira en minna lánaður frá félaginu. Síðasta tímabi var hann hjá Brighton. Hann á 36 landsleiki að baki, hefur leikið á HM og EM.

Reading setur stefnuna á að fara beint aftur upp.

Ferill Wayne Bridge:
Southampton (1997- júlí 2003)
Chelsea (Jul 2003- jan 2009)
Fulham (jan-maí 2006, lán)
Man City (jan 2009)
West Ham (jan-maí 2011, lán)
Sunderland (jan-maí 2012, lán)
Brighton (júl 2012-maí 2013)
Reading (jún 2013-)
England (36 landsleikir)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.