07.06.14 - 14:30
Alexander Freyr Tamimi
Yossi Benayoun til Maccabi Haifa (Staðfest)

Benayoun er kominn aftur heim.

Mynd: Úr einkasafni

Benayoun er kominn aftur heim.

Mynd: Úr einkasafni
Ísraelski landsliðsfyrirliðinn Yossi Benayoun hefur yfirgefið Queens Park Rangers og gengið til liðs við Maccabi Haifa í heimalandinu á tveggja ára samningi.
Þetta staðfesti félagið um daginn, en þessi 34 ára gamli miðjumaður hefur spilað undanfarin 12 ár í Evrópu og þar af lengst af með Liverpool.
Benayoun lék fjögur tímabil með Maccabi Haifa fyrr á ferlinum og vann ísraelsku deildina í tvígang áður en hann fór til Racing Santander á Spáni.
Haifa átti vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð og endaði í fimmta sæti ísraelsku deildarinnar, 31 stigi á eftir meisturum Maccabi Tel Aviv.