Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 07. júní 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vilja láta fjarlægja stjörnu Antonio Conte
Conte vann ensku úrvalsdeildina með Chelsea 2017.
Conte vann ensku úrvalsdeildina með Chelsea 2017.
Mynd: Getty Images
10 þúsund manns, flestir þeirra stuðningsmenn Juventus, hafa skrifað undir beiðni um að láta fjarlægja stjörnu Antonio Conte af Juventus Stadium.

Stjörnuna hans er að finna á leikvangi Juventus og er til að heiðra hans framlag til félagsins.

Conte var goðsögn í augum allra stuðningsmanna Juventus þar til fyrir rúmri viku þegar hann tók við stjórnartaumunum hjá erkifjendunum í Inter. Conte vann ógrynni titla með félaginu, bæði sem leikmaður og þjálfari, og hefur stýrt ítalska landsliðinu og Chelsea eftir að dvöl hans hjá Juve lauk sumarið 2014.

„Það er ekki fagmannlegt að fara til Inter. Það hefði verið fagmannlegt að taka við Napoli, Roma eða Milan. Að fara til Inter eru mestu svikin," segir sá sem fór af stað með beiðnina.

„Þú traðkar ofan á þínu eigin mannorði með að fara til Inter. Til félags sem gerði allt í sínu valdi til að gera lítið úr og eyðileggja hluta af stoltri sögu Juventus. Sögu sem þú ert stór partur af."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner