Fotbolti.net
07.06.22 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Flest bendir til þess að Ekitike verði leikmaður Newcastle

Flest bendir til þess að Ekitike verði leikmaður Newcastle
Canon

Mynd: Getty Images

Hugo Ekitike virðist við það að ganga frá samkomulagi við Newcastle um að ganga í raðir félagsins. Framherjinn verður tvítugur eftir tvær vikur.

Fyrr í vikunni var greint frá því að Reims, félagið sem Ekitike er samningsbundinn, hefði samþykkt tilboð frá Newcastle í leikmanninn.
Í dag er greint frá því að jákvæð niðurstaða hefði orðið á viðræðum milli umboðsmanna Ekitike og aðila hjá Newcastle.

Sky Sports greinir frá því að ef samningar náist þá muni Ekitike skrifa undir fimm ára samning og kaupverðið verður um 25 milljónir punda.

Ekitike var nálægt því að fara til Newcastle í janúar en ekkert varð úr skiptunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.