Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 07. júní 2022 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tveir reynsluboltar framlengja við Crystal Palace
McArthur
McArthur
Mynd: EPA
Þeir James McArthur og James Tomkins hafa framlengt samninga sína við Crystal Palace um eitt tímabil.

Samningar þeirra við félagið voru að renna út í þessum mánuði en þeir taka slagið í eitt tímabil í viðbót, hið minnsta.

McArthur (34 ára) kom frá Wigan árið 2014 og Tomkins (33 ára) kom frá West Ham árið 2016.

McArthur hefur spilað 249 leiki fyrir félagið og Tomkins hefur spilað 124 leiki. Tomkins var varaskeifa fyrir Marc Guehi og Joachim Andersen á liðinni leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner