Framtíð enska miðjumannsins Ruben Loftus-Cheek er óráðin, en það gæti farið svo að hann yfirgefi ítalska félagið AC Milan í sumarglugganum.
Loftus-Cheek, sem er þrítugur, á enn ár eftir af samningi sínum við Milan.
Hann gekk í raðir félagsins frá Chelsea árið 2023 og hefur síðan þá spilað hundrað leiki og komið að sautján mörkum.
Englendingurinn er staddur í Mónakó þar sem hann fylgist með Formúlu 1-kappakstrinum en hann ræddi stuttlega við Sky Sports um framtíðina.
*„Það er ekki margt sem ég get sagt í augnablikinu en akkúrat núna er ég að taka mér tíma til að slaka á í fríinu. Ég er að ná endurheimt, eyða tíma með fjölskyldunni og styðja enska landsliðið á HM.
Vonandi geta strákarnir gert góða hluti og við öll átt gott sumar. Þeir eru stútfullir af gæðum,“* sagði Loftus-Cheek.




