Fotbolti.net
27.07.26 - 11:14
Kári Snorrason

Fer yfir markvarðarbreytinguna - „Veit að Jón er að narta í hælana á honum“

Sneri aftur eftir ristarbrot.

Sneri aftur eftir ristarbrot.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Marinó Einarsson sneri aftur í mark Skagamanna í gærkvöld er liðið lagði Stjörnuna að velli 5-1. Árni hafði verið fjarverandi í rúma tvo mánuði vegna ristarbrots.

ÍA fékk þá undanþágu til að sækja markvörð eftir meiðsli Árna og keypti Jón Sölva Símonarson, 19 ára unglingalandsliðsmarkvörð frá Breiðabliki, og varði hann mark liðsins í fjarveru Árna.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Skagamanna, ræddi um markvarðarbreytinguna í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: ÍA 5 - 1 Stjarnan
„Jón Sölvi er búinn að standa sig vel. Árni var búinn að spila mjög vel þangað til hann meiddist, þannig að við erum með tvo mjög góða markmenn og nú er það bara hlutverk þeirra beggja að sá sem spilar sé að standa sig vel.“

„Árni veit að Jón Sölvi er að narta í hælana á honum, þannig að hann verður heldur betur að vera á tánum og hann var það í dag, eins og allt liðið,“
sagði Lárus Orri eftir sigur Skagamanna í gær.
„Við erum með tvo mjög góða markmenn og nú er það bara hlutverk þeirra beggja að sá sem spilar sé að standa sig vel“

„Við erum með tvo mjög góða markmenn og nú er það bara hlutverk þeirra beggja að sá sem spilar sé að standa sig vel“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri: Ágætis áminning útaf hverju maður er í þessu

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV15-716
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.