Fotbolti.net
27.07.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líkleg byrjunarlið í Akureyrarslagnum - Fjórir í banni og enginn Aron Einar

Líkleg byrjunarlið í Akureyrarslagnum - Fjórir í banni og enginn Aron Einar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Klukkan 19:15 mun Þórður Þorsteinsson Þórðarson flauta leik KA og Þórs af stað. Leikurinn fer fram á nýja Greifavellinum á KA svæðinu en KA fékk undanþágu frá KSÍ til að spila þennan leik á nýja vellinum og verða um 2000 áhorfendur.

Fyrri leikur liðanna fór fram í maí og sigraði KA með marki úr vítaspyrnu seint í leiknum. Liðin eru bæði í miklu brasi í Bestu deildinni og sitja í 10. og 12. sæti deildarinnar. KA er með þremur stigum meira en Þór fyrir leik kvöldsins, Þór kemur inn í leikinn eftir öflugan sigur á Víkingi í síðustu umferð og KA sótti stig til Vestmannaeyja.
Hin hliðin - Markús Máni Pétursson (KA)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Markús Máni Pétursson (KA)

Fjórir leikmenn taka út leikbann í kvöld, tveir úr hvoru liði. Jeppe Pedersen og Birgir Baldvinsson verða ekki með KA og þeir Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Ágúst Eðvald Hlynsson verða ekki með Þór.

Þá bárust þau tíðindi um helgina að Aron Einar Gunnarsson verður ekki með Þór í leiknum þar sem hann hefur skrifað undir samning hjá Qatar SC og spilar ekki fleiri leiki með Þór á tímabilinu.

Líklegt byrjunarlið KA
Jeppe hefur verið fastamaður inn á miðjunni hjá KA og vinstri bakvörðurinn Birgir er næstmarkahæsti leikmaður liðsins.

Steinþór Már Auðunsson er handarbrotinn og spilar ekki með KA á næstunni og Ívar Arnbro Þórhallsson stendur vaktina í markinu í stað Stubbs.

Við spáum því að Valdimar Logi Sævarsson komi inn í liðið fyrir Jeppe og að Samuel Kroon komi inn í vinstri bakvörðinn. Kroon hefur verið að glíma við meiðsli en Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, ýjaði að því í viðtali við Akureyri.net í gær að tveir leikmenn myndu snúa aftur í hópinn í dag. Aðrir kostir í vinstri bakvarðarstöðuna eru þeir Breki Hólm Baldursson og Kári Gautason.

Adam Ægir Pálsson spilaði sem fremsti maður í Eyjum og hann gæti skipt við Jakob Snæ sem hefur leyst stöðu fremsta manns.


Líklegt byrjunarlið Þórs
Það er öllu erfiðara að rýna í lið Þórs. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins, sagði í viðtali við Akureyri.net í gær að þeir Christian Greko Jakobsen og Ragnar Óli Ragnarsson væru tæpir fyrir leikinn. Hann gaf hins vegar í skyn að Atli Sigurjónsson væri klár eftir að hafa glímt við meiðsli.

Þór fékk Þorra Ingólfsson á láni frá Víkingi í liðinni viku og Victor Bertomeu kom til Akureyrar eftir að hafa spilað í indversku ofurdeildinni fyrri part árs. Ingimar Arnar Kristjánsson var þá seldur til Århus Fremad í Danmörku.

Bjarni Guðjón hefur spilað miðsvæðis og einnig leyst stöður í varnarlínunni. Ágúst Eðvald hefur spilað fyrir aftan fremsta mann eða úti á kantinum. Út frá leikbönnum og brotthvarfi Arons Einars verða að lágmarki þrjár breytingar á liði Þórs milli leikja.

Við spáum því að þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson og Birgir Ómar Hlynsson komi inn í varnarlínuna, Kristófer Kristjánsson færi sig upp á miðjuna og Vitor Bertomeu komi inn í liðið sem fremsti maður.

Sigfús Fannar og Þorri Ingólfs gera einnig tilkall í það hlutverk, en við spáum því að Siggi veðji á nýja Spánverjann. Þeir Sigfús og Þorri gera sömuleiðis tilkall í að byrja á vinstri kantinum en við spáum því að Fannar byrji þar. Atli kemur svo inn og leysir hlutverk Ágústs á kantinum, en Atli gæti einnig spilað miðsvæðis og Kristófer á kantinum.

Greko er tæpur vegna meiðsla og okkur þykir líklegt að Gyrðir færi sig upp á miðjuna ef sá danski er ekki klár í slaginn. Þá gætu Sverrir Páll Ingason (bakvörður) og Hermann Helgi Rúnarsson (varnarsinnaður miðjumaður) einnig fengið kallið.

Birgir, sem hefur skorað fjögur mörk í deildinni, tekur út leikbann í dag.

Birgir, sem hefur skorað fjögur mörk í deildinni, tekur út leikbann í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snýr Kroon aftur í liðið?

Snýr Kroon aftur í liðið?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hallgrímur Mar skoraði eina mark fyrri leiksins úr vítaspyrnu.

Hallgrímur Mar skoraði eina mark fyrri leiksins úr vítaspyrnu.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Þór kynnti Victor Bertomeu sem nýjan leikmann félagsins á föstudag.

Þór kynnti Victor Bertomeu sem nýjan leikmann félagsins á föstudag.

Canon

Mynd: Þór

Aron Einar spilar ekki meira með Þór á tímabilinu.

Aron Einar spilar ekki meira með Þór á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gyrðir var maður leiksins gegn Víkingi.

Gyrðir var maður leiksins gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ágúst Hlyns fékk mjög ódýrt spjald gegn Víkingi og þarf að horfa á leikinn í kvöld úr stúkunni. Ágúst er markahæsti leikmaður Þórs með fimm mörk í sumar.

Ágúst Hlyns fékk mjög ódýrt spjald gegn Víkingi og þarf að horfa á leikinn í kvöld úr stúkunni. Ágúst er markahæsti leikmaður Þórs með fimm mörk í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.