Fotbolti.net
27.07.26 - 11:08
Fótbolti.net

Lið og leikmaður 15. umferðar - Mærudagahetjan

Elfar Árni Aðalsteinsson er leikmaður umferðarinnar.

Elfar Árni Aðalsteinsson er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það hafa verið margir áhugaverðir leikir í Lengjudeildinni að undanförnu og við gerum hér upp 15. umferðina, þó henni ljúki reyndar ekki fyrr en 25. ágúst þegar Afturelding og Grótta mætast í frestuðum leik.

LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
„Þetta var ákaflega sannfærandi og sanngjarnt. Eins og maðurinn sagði, Völsungur er alltaf Völsungur á Mærudögum. Elfar Árni Aðalsteinsson er svo frábær fótboltamaður!" skrifaði Einar Már Þórólfsson í textalýsingu frá 2-0 sigri Völsungs gegn Grindavík. Elfar Árni skoraði bæði mörkin og er maður umferðarinnar.

Victor Mendez markvörður Völsungs fær einnig pláss í liði umferðarinnar.

Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR er þjálfari umferðarinnar en Breiðhyltingar unnu 2-0 sigur á Fylki. Óliver Elís Hlynsson og Jón Arnar Sigurðsson voru frábærir í vörn ÍR og Kristján Atli Marteinsson var einnig öflugur.

Þróttur vann 5-1 útisigur gegn Leikni. Örn Bragi Hinriksson var með mark og stoðsendingu og var valinn maður leiksins. Aron Snær Ingason skoraði tvö mörk. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal og Kári Kristjánsson eru einnig í úrvalsliðinu.

Þá vann Njarðvík 3-2 endurkomusigur á HK þar sem Bragi Karl Bjarkason skoraði sigurmarkið og Arnleifur Hjörleifsson var valinn maður leiksins.

Fyrri úrvalslið:
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR
Örn Bragi Hinriksson.

Örn Bragi Hinriksson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Arnar Sigurðsson.

Jón Arnar Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.