07.07.14 - 10:02
Elvar Geir Magnússon
Ashley Cole til Roma (Staðfest)

Ashley Cole mættur til Rómar.

Mynd: Twitter

Ashley Cole mættur til Rómar.

Mynd: Twitter
Roma hefur staðfest að félagið hefur gert tveggja ára samning við Ashley Cole. Á opinberri Twitter-síðu Roma var birt mynd af Cole þar sem hann er lentur á flugvellinum í Róm og við myndina stendur „Velkominn til Rómar Ashley\".
Þessi 33 ára vinstri bakvörður kemur á frjálsri sölu eftir að hafa verið leystur frá Chelsea í sumar. Hann var orðaður við félög á Englandi en umboðsmaður hans sagði að framtíð leikmannsins lægi utan Englands.
Cole lék átta tímabil með Chelsea og vann Meistaradeildina, Evrópudeildina. úrvalsdeildina og fjórum sinnum FA-bikarinn.
Hann á 107 leiki að baki fyrir England en tilkynnti í maí að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna þar sem hann var ekki valinn í landsliðshópinn fyrir HM.