07.07.14 - 07:52
Hafliði Breiðfjörð
Guðbjörg Gunnarsdóttir til Lilleström (Staðfest)

Guðbjörg í leik með Avaldsnes gegn Stabæk í Noregi í nóvember í fyrra. Hún er komin aftur í norska boltann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður íslenska landliðsins hefur samið við norska toppliðið Lilleström til ársins 2015 en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net.
Guðbjörg kemur til félagsins frá Potsdam í Þýskalandi en þar rifti hún samningi nýlega og hefur verið félagslaus síðustu vikurnar.
Lilleström er staðsett rétt fyrir utan Osló en félagið er með þriðja markvörð norska landsliðsins sem Guðbjörg um keppa við.
Þetta er í annað skiptið á ferlinum sem hún spilar í Noregi en hún lék út síðasta ár með Avaldsnes sem þær Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir eru með.