Fotbolti.net
07.07.14 - 14:34
Daníel Freyr Jónsson

Juan Bernat til FC Bayern (Staðfest)

Juan Bernat.

Juan Bernat.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýskalandsmeistarar FC Bayern hafa fengið til sín spænska varnarmanninn Juan Bernat frá Valencia.

Bernat skrifaði undir fimm ára samning hjá Bayern, en hann er 21 árs gamall og spilar aðallega í stöðu vinstri bakvarðar. Getur hann þó einnig spilað sem vængmaður.
Bernat þykir mikið efni og spilaði hann 51 leik með Valencia. Lék hann sína fyrstu leiki fyrir félagið leiktíðina 2011-12 en festi sig í sessi sem byrjunarliðsmaður á síðustu leiktíð.

Er hann þriðji Spánverjinn í röðum FC Bayern, en fyrir voru miðjumennirnir Thiago Alcantara og Javi Martinez.

Heimild: Heimasíða FC Bayern

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.