Fotbolti.net
07.07.14 - 16:54
Daníel Freyr Jónsson

Tom Ince skrifaði undir hjá Hull (Staðfest)

Tom Ince er kominn til Hull.

Tom Ince er kominn til Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Vængmaðurinn Tom Ince er genginn í raðir Hull City á frjálsri sölu. Skrifaði hann undir tveggja ára samning á KC-leikvanginum fyrr í dag.
Ince yfirgaf Blackpool við lok síðustu leiktíðar þar sem samningur hans var runninn út. Var hann nálægt því að ganga í raðir Inter á Ítalíu, en áhugi enskra úrvalsdeildarliða kom í veg fyrir að hann skrifaði undir þar.

Ince vakti mikla athygli þegar hann skoraði 18 mörk með Blackpool í Championship-deildinni leiktíðina 2012-13. Hafði hann síðan skorað sjö mörk á fyrri helming síðustu leiktíðar áður en hann var lánaður til Crystal Palace í janúar.

Hull þarf reglum samkvæmt að greiða Blackpool uppeldisbætur og eiga félögin í samningaviðræðum um upphæð þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.