Fotbolti.net
07.07.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Barcelona fær Marlon (Staðfest) - Líkt við Thiago Silva

Marlon

Marlon

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórliðið Barcelona hefur komist að samkomulagi við Fluminense um að fá hinn efnilega Marlon á láni út tímabilið. Brasilíska félagið hefur staðfest þetta.
Barcelona hefur forkaupsrétt á leikmanninum eftir tímabilið, en samkvæmt Globoesporte mun leikmaðurinn spila með B-liði félagsins á komandi tímabili og fari svo að Barcelona vilji kaupa hann, þá mun hann kosta 6 milljónir evra.

Ef Marlon spilar með aðalliði Barcelona á meðan á lánssamningnum stendur hækkar verðið upp í 8 milljónir evra og ef hann spilar fimm eða fleiri leiki þarf Barcelona að kaupa hann, sama hvað gerist.

„Hann var lánaður til Barcelona í eitt ár og fær liðið forkaupsrétt á honum þangað til í júlí 2017,\" sagði stjóri íþróttamála hjá Fluminense.

Marlon er mikils metinn í Brasilíu og hefur verið líkt við hinn öfluga Thiago Silva sem leikur með PSG í Frakklandi. Silva kom einnig upp úr unglingaliðum Fluminense.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.