07.07.16 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Clarence Seedorf tekur við liði í Kína (Staðfest)

Seedorf er mættur til Kína

Mynd: Getty Images

Seedorf er mættur til Kína

Mynd: Getty Images
Hinn hollenski Clarence Seedorf er tekinn við liði Shenzhen FC í Kína.
Eina liðið sem Seedorf hefur þjálfað er AC Milan. Hann fór þaðan í júní 2014 eftir fimm mánuði í starfi.

Hinn fertugi Seedorf var orðaður við QPR og Newcastle á síðasta ári, en hann hefur sagt það að draumur sinn sé að þjálfa á Englandi.
„Ég á í sérstöku sambandi við enska fótboltann. Ég var mjög nálægt því að fara þangað, oft á mínum á ferli,\" sagði Seedorf.
„Það gerðist aldrei en það væri frábært að fá að þjálfa í Englandi og upplifa enska fótboltann og stuðningsmennina þar í hverri viku.\"
Hann heldur nú til Kína, en þar eru peningarnir gríðarlega miklir. Menn eins og Hulk og Jackson Martinez hafa haldið til Kína undanfarið og þéna þeir ótrúlega peninga.
Seedorf á magnaðan leikmannaferil að baki, en hann vann fjölda titla með Ajax, Real Madrid og A.C. Milan. Hann á enn eftir að sanna sig sem þjálfari og það er spurning hvað hann gerir í Kína.

Heimild: BBC