07.07.16 - 15:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Leeds fær ungan miðjumann frá Swansea (Staðfest)

Matt Grimes á nýja heimavellinum.

Mynd: Heimasíða Leeds

Matt Grimes á nýja heimavellinum.

Mynd: Heimasíða Leeds
Matt Grimes, leikmaður Swansea er kominn til Leeds United á láni út tímabilið.
MIðjumaðurinn er annar leikmaðurinn á stuttum tíma sem kemur til félagsins frá Swansea en Kyle Bartley kom á dögunum. Garry Monk, þjálfari Leeds, þekkir ansi vel til velska félagsins þar sem hann bæði spilaði með þeim og þjálfaði þá.
Grimes er tvítugur en hann var á láni hjá Blackburn Rovers á síðustu leiktíð.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem Leeds fær til sín í sumar en liðið ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili.
Grimes er tvítugur en hann var á láni hjá Blackburn Rovers á síðustu leiktíð.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem Leeds fær til sín í sumar en liðið ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili.
