Fotbolti.net
07.07.16 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Marcelo Bielsa tekur við Lazio (Staðfest)

Marcelo Bielsa er kominn í ítalska boltann

Marcelo Bielsa er kominn í ítalska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Lazio er búið að ráða Marcelo Bielsa sem nýjan knattspyrnustjóra liðsins.
Hinn 60 ára gamli Bielsa sem þjálfaði síðasta Marseille í Frakklandi mun koma starfa hjá Lazio þann 9. júlí.

Lazio spilaði ekki vel á síðasta tímabili og endaði 8. sæti Seríu A. Stefano Pioli var rekinn í apríl og nú hefur Bielsa verið ráðinn í hans stað.

Bielsa stýrði Argentínu til sigurs á Ólympíuleikunum árið 2004 og kom Síle á HM í Suður-Afríku árið 2010.

Hann náði síðan mögnuðum árangri með Athletic Bilbao, en hann hafi verið án starfs síðan hann yfirgaf Marseille síðasta sumar.

Tata Martino sagði starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Argentínu á dögunum og nafn Bielsa kom strax inn í umræðuna, en hann ákvað þó að taka við Lazio.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.