Fotbolti.net
07.07.22 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Rangers búið að kaupa Antonio Colak (Staðfest)

Rangers búið að kaupa Antonio Colak (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Rangers er búið að festa kaup á króatíska sóknarmanninum Antonio Colak sem kemur frá PAOK.

Colak skrifar undir þriggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu en honum hefur ekki gengið vel að skora með PAOK í gríska boltanum.

Rangers er talið borga 2,5 milljónir evra fyrir sóknarmanninn sem er 28 ára gamall og frægur fyrir að hafa raðað inn mörkunum á lánssamningi hjá Malmö í fyrra með 14 mörkum í 26 leikjum. Þar áður rúllaði hann upp króatísku deildinni og skoraði 26 mörk í 40 leikjum með Rijeka.

Rangers er þá að missa Joe Aribo til Southampton og staðfesti Giovanni van Bronckhorst knattspyrnustjóri það í dag.

„Þetta er frábær sóknarmaður sem mun auka samkeppnina í fremstu víglínu. Ég er mjög spenntur fyrir honum," sagði Van Bronckhorst.

„Í sambandi við Joe (Aribo) þá er hann lykilmaður fyrir okkur en við getum ekki stöðvað hann frá því að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann er metnaðarfullur og á það skilið."

Colak mun berjast við menn á borð við Alfredo Morelos, Kemar Roofe og Fashion Sakala um byrjunarliðssæti í fremstu í víglínu.

Rangers búið að kaupa Antonio Colak (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.