Fotbolti.net
07.07.22 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson

West Ham kaupir Downes (Staðfest)

West Ham kaupir Downes (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United er búið að staðfesta komu miðjumannsins Flynn Downes til félagsins.

Downes er 23 ára gamall og var lykilmaður í liði Swansea á síðustu leiktíð eftir að hafa verið leikmaður Ipswich Town í fjögur ár.

Hamrarnir borga 9 milljónir punda en heildarupphæðin getur farið upp í 14 milljónir með árangurstengdum aukagreiðslum.

Downes er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir West Ham í sumar eftir Alphonse Areola og Nayef Aguerd.

Hann spilaði aftarlega á miðjunni í liði Swansea og mun berjast við Tomas Soucek og Declan Rice um byrjunarliðssæti hjá West Ham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.