Fotbolti.net
07.07.26 - 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Burnley í viðræðum við belgískan þjálfara

Burnley í viðræðum við belgískan þjálfara
Canon

Mynd: EPA

Burnley er í viðræðum við Nicky Hayen um að taka við stjórastöðunni hjá félaginu. Burnley hefur verið í þjálfaraleit eftir að Scott Parker hætti hjá félaginu. Craig Bellamy fór í viðræður við félagið en hann verður áfram landsliðsþjálfari Wales.

Núna greinir SkySports frá því að Burnley sé í viðræðum við Nicky Hayen sem er þjálfari KRC Genk í Belgíu.
Burnley vonast til að ná samkomulagi við Hayen fyrir leikinn gegn FC Cincinnati á föstudag en það er fyrsti leikur undirbúningstímabilsins. Burnley féll úr úrvalsdeildinni í vor og verður í Championship deildinni á komandi tímabili.

Hayen er 45 ára Belgi sem tók við Genk í lok síðasta árs en hann var áður hjá Club Brugge. Hann varð belgískur meistari og bikarmeistari með Club Brugge og var árið 2024 valinn þjálfari ársins í Belgíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.