Fotbolti.net
07.07.26 - 22:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Sviss mætir Argentínu eftir sigur í vítaspyrnukeppni

HM: Sviss mætir Argentínu eftir sigur í vítaspyrnukeppni
Canon

Mynd: EPA

Sviss 0 - 0 Kólumbía (4-3 í vítaspyrnukeppni)
Sviss er komið í 8-liða úrslit á HM eftir sigur á Kólumbíu í kvöld. Liðið mætir Argentínu í 8-liða úrslitunum.

Bæði lið áttu í vandræðum með að skapa sér almennileg færi í fyrri hálfleik sem var markalaus.

Svisslendingurinn Dan Ndoye vildi fá vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik eftir viðskipti sín við Daniel Munoz en ekkert dæmt.

Fabian Rieder átti góða tilraun úr aukaspyrnu en boltinn rétt framhjá markinu.

Luis Diaz sýndi fína takta eftir klukkutíma leik og átti skot sem svissneski markvörðurinn Gregor Kobel varði.

Hvorugu liðinu tókst hvorki að skora í venjulegum leiktíma né framlengingu og það þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni.

Sviss var með 2-1 forystu eftir tvær umferðir. Davinson Sanchez klikkaði á öðru víti Kólumbíu þegar hann skaut í slá. Jaminton Campaz skoraði úr þriðja víti Kólumbíu en Manuel Akanji skaut yfir úr þriðja víti Sviss og staðan var því orðin jöfn.

Kobel varði fjórðu spyrnu Kólumbíu frá Cucho Hernandez. Bæði lið skoruðu úr næstu tveimur spyrnum og Ruben Vargas tryggði Sviss sigurinn þegar hann skoraði úr fimmtu spyrnu Sviss.

Vítaspyrnukeppnin
0-1 Juan Quintero skoraði
1-1 Granit Xhaka skoraði
1-1 Davinson Sanchez skaut í slá
2-1 Zeki Amdouni skoraði
2-2 Jaminton Campaz skoraði
2-2 Manuel Akanji skaut yfir
2-2 Gregor Kobel varði frá Cucho Hernandez
3-2 Cedric Itten skoraði
3-3 Luis Díaz skoraði
4-3 Ruben Vargas skoraði
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.