Fotbolti.net
07.08.13 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)

Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Garðbæingurinn Ólafur Karl Finsen sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni en hann leikur með Stjörnunni í Pepsi-deildinni. Í fyrra lék Ólafur með Selfossi en auk þess var hann á mála hjá hollenska félaginu AZ Alkmaar á sínum yngri árum.
Fullt nafn: Ólafur Karl Finsen

Gælunafn sem þú þolir ekki: Slóbódan

Aldur: 21

Giftur/sambúð: Neinei, ekki um jólin

Börn: Nei

Kvöldmatur í gær: Ristað brauð og kaffi

Uppáhalds matsölustaður: Caruso

Hvernig bíl áttu: Polo

Besti sjónvarpsþáttur: Dexter og Breaking bad. Seinfeld er lika endalaust fyndið

Uppáhalds hljómsveit: Guns n roses

Uppáhalds skemmtistaður: B5

Frægasti vinur þinn á Facebook: Ingólfur Þórarinsson

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: world class klukkan 6 og fjórhjól uppi krisuvik á eftir (staðfest)!!!

Hefurðu tekið dýfu innan teigs: Hvað er það?

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Breiðablik

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Á slæmar minningar frá því að hafa spilað á móti Christian Eriksen

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Sem betur fer hef eg ekki spilað á móti Robert Sandnes nema bara á æfingum þannig ég segi nágranni minn Grétar Atli Grétarsson

Sætasti sigurinn: Bara bikarinn um daginn á móti Þór

Mestu vonbrigðin: Að falla með Selfossi í fyrra, líka tap á móti Tyrklandi með u19 þegar við vorum yfir 1-0 en þeir skoruðu tvö í lokin og við komumst þess vegna ekki áfram.

Uppáhalds lið í enska: Chelsea þó ég haldi ekki með þeim

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Sigurbergur Elísson

Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Færa leiki í Pepsideildinni yfir á föstudag og laugardag. Þýðir ekki að eyðileggja næstum allar helgar fyrir mönnum yfir sumartímann.

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins: Darri steinn konráðsson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni: Atli Guðnason

Fallegasta knattspyrnukonan: Helena Ólafsdóttir

Besti íþróttalýsandinn: Svali Björgvinsson

Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Henrik Bödker.

Uppáhalds staður á Íslandi: Garðabær

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: 2. flokks leikur í Boganum á móti KA. Við vorum að vinna 1-0 og Davíð Guðjónsson markmaður var að fara taka útspark þegar það var lítið eftir af leiknum. Hann átti í einhverjum erfiðleikum með tilhlaupið að boltanum og hætti alltaf við að sparka og tók nýtt tilhlaup, fékk gult spjald en tilhlaupið mistókst samt aftur og aftur og allt orðið vitlaust hjá fólkinu sem var að horfa á leikinn. Einhver kona öskraði á Davíð og þá ákvað hann að sleppa að taka útsparkið fara rífast við hana og útskyra að hann væri aldrei í rétta skrefinu þegar hann var að fara sparka og þá trompaðist allt í höllinni. Á endanum eftir svona sjö tiilraunir þá sparkaði hann boltanum glæsilega fram völlinn.

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Fyrsti leikur í Íslandmóti var alllvega móti KR 2010 með Stjörnunni á gervigrasinu

Besta við að æfa fótbolta: Það er allavega ekki félagsskapurinn meðan Davíð Guðjónsson þriðji markmaður fær að æfa með okkur

Hvenær vaknarðu á daginn: Um 10 leytið

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: NBA

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik: Ísland - Slóvenía

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Var í vapor en þeir meiddu mig svo ég var að fá mér baneitraða adizero

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Handavinnu, endaði með að ég gafst upp þegar ég saumaði í gegnum þumalinn á mér í saumavél

Vandræðalegasta augnablik: Þau eru mörg, flest þegar menn eru með míkrafón í andlitinu á mér

Skilaboð til Lars Lagerback: Do you think you can just come to iceland with your attitude and think you are some king or something? Your behavior has been a total disgrace!

Viltu opinbera leyndarmál að lokum: Ég er hálf blindur á hægra auganu . P.s. Silfurskeiðin eru huggulegir höfðingjar
Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin hliðin - Ólafur Karl Finsen (Stjarnan)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.